Persónuverndarstefna og upplýsingar um vinnslu
persónuupplýsinga þinna sem Zinzino Independent Partner
(sjálfstæðs samstarfsaðila)
1. Hvað er persónuverndarstefna?
1.1. Í persónuverndarstefnu okkar útskýrum við hver ber ábyrgð á þeirri vinnslu persónuupplýsinga sem á sér
stað þegar þú pantar vörur eða þjónustu frá okkur. Við lýsum því einnig hvaða þætti persónulegra gagna
um þig er verið að vinna þegar þú veitir okkur upplýsingar við ýmsar aðstæður, hvernig við vinnum
persónuupplýsingar, hvers vegna við gerum það og hvaða lagalegan grundvöll við notum til að réttlæta
vinnsluna, ásamt því að útskýra hvaða þriðju aðilar kunna að vinna persónuupplýsingar um þig svo að við
getum útvegað þá vöru og þjónustu sem þú hefur pantað. Þú færð einnig upplýsingar um réttindi þín
varðandi vinnslu okkar á persónugögnum og hvernig þú ferð að því að framfylgja réttindum þínum.
2. Mikilvægir skilmálar og hugtök
Hér eru nokkrir mikilvægir skilmálar og hugtök sem kunna að vera gagnleg til að öðlast ýtarlegri skilning
á persónuverndarstefnu okkar:
a) „Persónuleg gögn" merkir allar upplýsingar sem varða auðkennda eða persónugreinanlega
einstaklinga. Persónugreinanlegur einstaklingur er persóna sem hægt er að greina beint eða óbeint
með tilvísun til gagnaþátta, til dæmis nafns, kennitölu, upplýsinga um staðsetningu, auðkenni á
netinu á borð við IP-tölu, eða eins eða fleiri þátta sem eru sértækir með vísan til líkamlegra,
lífeðlisfræðilegra, erfðafræðilegra, sálfræðilegra, fjárhagslegra, menningarlegra eða félagslegra
auðkenna viðkomandi einstaklings
b)„Vinnsla" merkir mælingar eða samsetningu ráðstafana sem varða persónuleg gögn, svo sem
söfnun, skráningu, uppröðun, skipulagningu, geymslu, aðlögun eða breytingu, vinnslu, lestur,
notkun, miðlun með flutningi, annars konar dreifingu eða ráðstafanir, leiðréttingu eða söfnun,
takmörkun, eyðingu eða eyðileggingu
c) „Zinzino Independent Partner (sjálfstæður samstarfsaðili)" þýðir einstaklingur eða fyrirtæki á skrá
hjá Zinzino sem endurselur vörur Zinzino
3. Hver ber ábyrgð á vinnslunni?
3.1. Zinzino EHF er gagnastjóri vinnslunnar. Í þessum texta er vísað til Zinzino EHF sem „við" en til
einstaklinga sem eru eða verða Zinzino Independent Partner (sjálfstæðir samstarfsaðilar) er vísað sem
„þú".
3.2.Sé gerður samstarfssamningur við fyrirtæki ber fyrirtækið ábyrgð á persónugagnavinnslu sinni og
lögmæti flutnings persónulegra gagna tengiliða og notenda til Zinzino. Zinzino ber eingöngu ábyrgð á
vinnslu persónuupplýsinga sem á sér stað hjá Zinzino
4. Almennt um vinnslu okkar á persónulegum gögnum
4.1. Almennt um vinnslu okkar á persónulegum gögnum
4.1. Við vinnum persónugögn um þig eingöngu eins og nauðsynlegt er í þeim tilgangi sem tilgreindur er í 5.
kafla hér að neðan. Auk þess erum við með verklagsreglur um hvernig við vistum og fjarlægjum
persónugreinanlegar upplýsingar úr persónulegum gögnum til þess að tryggja stöðugt að persónuleg gögn
séu nægileg og viðeigandi á öllum tímum.
Hvaðan eru gögnin fengin
4.2. Upplýsingarnar eru fengnar beint frá þér úr upplýsingum sem þú gefur okkur þegar þú skráir þig sem
Zinzino Independent Partner (sjálfstæður samstarfsaðili) og þeim upplýsingum sem þú skráir eða hleður
inn á vefsíðu okkar síðar. Að auki vinnum við upplýsingar um þá sölu á þínum vegum sem hefur átt sér
stað hjá okkur þegar viðskiptavinir eða aðrir Zinzino Independent Partners (sjálfstæðir samstarfsaðilar)
panta vörur og/eða þjónustu frá okkur.
4.3. Þú þarft að gefa þær upplýsingar sem við óskum eftir í tengslum við samstarfssamninginn til þess að geta
orðið Zinzino Independent Partner (sjálfstæður samstarfsaðili). Þess vegna er nauðsynlegt að veita
umbeðnar upplýsingar svo við getum gert samning við þig.
5. Hvaða persónuleg gögn við vinnum um þig og hvers vegna og tengd mál
Við vinnum persónuupplýsingar í því skyni að hafa umsjón með samstarfinu og til þess að geta lagt fram
reikningsyfirlit vegna punkta og umboðslauna.
5.1. Þegar þú skráir þig sem Zinzino Independent Partner (sjálfstæðan samstarfsaðila), gerir þú samning við
okkur. Því skráum við allar persónulegar upplýsingar sem þú gefur okkur í tengslum við gerð pöntunar,
eða sem þú gefur okkur síðar, svo sem nafn þitt, kennitölu, heimilisfang, netfang og símanúmer og
upplýsingar um hvernig þú hafðir samband við okkur, til dæmis IP-tölu, í því skyni að uppfylla
skuldbindingar samningsins við þig en einnig til úrvinnslu á samstarfssamningi þínum og/eða áskrift, til
að afhenda þér vöru og þjónustu sem hefur verið pöntuð, hafa umsjón með greiðslum og annast og
uppfylla alla þjónustuskyldur við viðskiptavini vegna keyptrar vöru. Þessar tegundir persónuupplýsinga
sem okkur eru veittar innan ramma samstarfssamnings eða við pantanir, nefnum við „gögn
samstarfsaðila" og „pöntunargögn."
5.2. Pöntunargögnin sem við söfnum til að geta unnið úr og að öðru leyti annast pantanir þínar verða sett í
vinnslu til þess að uppfylla samninginn við þig á meðan viðskiptasamband okkar er í gildi og á því
tímabili sem við berum einhverja ábyrgð á skuldbindingum.
5.3. Gögn samstarfsaðila sem við söfnum verða í vinnslu á meðan þú ert Zinzino Independent Partner
(sjálfstæður samstarfsaðili) og áfram þar til við höfum gefið upp öll umboðslaun eða önnur fríðindi sem
þú gætir átt rétt á samkvæmt samstarfssamningi, svo við getum staðið við samkomulag okkar við þig.
5.4. Einnig verður unnið úr þínum gögnum samstarfsaðila á meðan einhver annar Sjálfstæður samstarfsaðili
Zinzino á rétt á umboðslaunum eða punktum á grundvelli sölu til þín eða viðskiptavina sem þú hefur
aflað, sem og þeim viðskiptavinum sem að öðru leyti hafa valið að tengjast þér sem Zinzino Independent
Partner (sjálfstæðum samstarfsaðila). Í þeim tilvikum byggist stuðningur við gagnavinnsluna á því að
vega og meta hagsmuni, þar sem lögmætir hagsmunir Zinzino af því að vinnslan sé leyfð til þess að
uppfylla upplýsingaskyldu sína eru vegnir og metnir gagnvart hagsmunum viðkomandi Zinzino
Independent Partners (sjálfstæðra samstarfsaðila).
Við vinnum persónuleg gögn þegar aðrir nota vefsíðu okkar
5.5. Þegar þú notar vefsíðu okkar söfnum við sjálfkrafa og vinnum tæknilegar upplýsingar, þar á meðal IPtölu, innskráningarupplýsingar, gerð og útgáfu stýrikerfis og tækis, tíma, valið tungumál, vefkökur,
tímann sem fer í gerð pantana, áslátt o.s.frv. Við vísum til þannig persónulegra gagna, sem gefin eru upp í
tengslum við notkun vefsíðunnar okkar, sem "notendagagna."
5.6. Notendagögn þín eru unnin í því skyni að veita þér rétt til innskráningar og að nota notandareikning þinn
á heimasíðu okkar, tryggja hver þú ert, hafa nákvæmar og dagréttar upplýsingar um þig svo þú getir fylgst
með og stjórnað pöntunum í vinnslu, til að geta stjórnað vali með tilliti til stillinga og greiðsluupplýsinga,
til að aðstoða við frekari þróun og úrbætur á vefsetri okkar og tölvukerfum sem notuð eru til að veita
hana, ásamt því að geta afhent þér vöru og þjónustu sem þú hefur pantað samkvæmt almennum
skilmálum og skilyrðum okkar. Notendagögn um þig sem við höfum safnað verða vistuð jafn lengi og
gögn þín sem samstarfsaðila okkar sem við vinnum.
Við vinnum persónuleg gögn til þess að gera þér kleift að taka þátt í Zinzino4 Free áætluninni
5.7. Við förum einnig yfir persónuleg gögn og upplýsingar um það sem þú hefur pantað og greitt, í því skyni
að stjórna aðild þinni að „Zinzino4Free" áætluninni.
5.8. Þau persónulegu gögn sem unnin eru innan ramma „Zinzino4Free" áætlunarinnar verða unnin á meðan þú
velur að vera aðili að „Zinzino4Free" áætluninni, í þeim tilgangi að uppfylla aðildarsamning okkar.
Við vinnum persónuleg gögn svo hægt sé að kynna þér vörur okkar og þjónustu
5.9. Að lokum vinnum við persónuleg gögn þín í markaðslegum tilgangi, með öðrum orðum svo hægt sé að
kynna þér vörur okkar og markaðssetja þær
5.10. Jafnvel þótt gögnin séu unnin í markaðslegum tilgangi, byggist það á því að vega og meta hagsmuni þar
sem við metum það svo að áhugi okkar á að markaðssetja vörur okkar til þín sé það lögmætur áhugi að
það þýði að vinnsla er leyfileg. Slík úrvinnsla vegna markaðssetningar mun eiga sér stað að hámarki í eitt
ár eftir að viðskiptasambandi okkar við þig lýkur.
Gögn sem við þurfum að vinna úr lögum samkvæmt
5.11. Til viðbótar framangreindu er okkur heimilt að vinna persónuupplýsingar til að uppfylla lögbundnar
skyldur, t.d. um bókhaldsskyldu að því umfangi og á því tímabili sem tilgreint er í lögum.
6. Samþykki til tiltekinnar vinnslu og „rétturinn til að gleymast"
Samþykki um að birta öðrum samstarfsaðilum persónuupplýsingar
6.1. Veigamikill hluti af því að vera Zinzino Independent Partner (sjálfstæður samstarfsaðili) er að þú getur
fylgst með því hverju samstarfsaðilar þér tengdir í því sem við nefnum = „Partner Tree" hafa skilað af sér
hvað sölu varðar og þú getur fylgst með því hvernig þér gengur að bæta stöðu þína sem samstarfsaðili.
Þess vegna verða allir Zinzino Independent Partners (sjálfstæðir samstarfsaðilar) að samþykkja að nafn
þeirra, póststaður, tengslaupplýsingar, staða sem samstarfsaðila og sölugögn, svo sem skipulag fyrirtækis,
pöntunargögn, sala, umboðslaun og þjónustuskuldbindingar við viðskiptavini verði aðgengilegar öðrum
Zinzino Independent Partners (sjálfstæðum samstarfsaðilum). Því verður þú að samþykkja að við vinnum
persónuupplýsingar þínar í þessum tilgangi þegar þú verður Zinzino Independent Partner (sjálfstæður
samstarfsaðili). Ef þú samþykkir þetta ekki getur þú ekki orðið Zinzino Independent Partner (sjálfstæður
samstarfsaðili).
6.2. Þér gæti öðru hverju einnig boðist tækifæri til að veita okkur viðbótarupplýsingar um þig, aðrar en þær
sem tilgreindar eru hér að ofan, um heimasíðu okkar, svo sem að senda inn mynd af þér eða taka þátt í
kynningum o.s.frv. Allar upplýsingar sem þú gefur okkur og sem ekki verða notaðar í öðrum tilgangi eins
og fram kemur hér að ofan verða unnar eftir samþykkis þíns hefur verið aflað. Nú á þetta við um a)
myndir sem þú hleður inn á vefsíðuna okkar, þar til þú dregur til baka samþykki þitt eða þar til reikningi
þínum hjá okkur er eytt (til dæmis vegna þess að langur tími er liðinn frá síðustu pöntun þinni) og b) með
tilliti til kynningarátaka þar til vinningshafinn hefur verið tilkynntur og verðlaunin í kynningunni hafa
verið afhent. Takir þú þátt í kynningum okkar samþykkir þú einnig að nafn þitt og mynd verði
opinberlega birt á vefsíðu okkar, ef þú ert einn af vinningshöfum kynningarátaks.
Réttur þinn til að afturkalla samþykki
6.3. Hvað varðar persónuleg gögn þín og svo lengi sem persónuupplýsingar eru eingöngu unnar á
grundvelli samþykkis þíns er þér heimilt að afturkalla samþykki þitt hvenær sem er með því að
hafa samband við okkur. Ef samþykki þitt liggur fyrir í slíku tilviki er þeim persónuupplýsingum
eytt sem við vinnum úr eingöngu á grundvelli samþykktar notanda („rétturinn til að gleymast").
Séu gögnin jafnframt unnin í öðrum tilgangi verða þau því ekki lengur unnin í tilgangi þar sem
úrvinnslan byggist á samþykki þínu.
6.4 Ef þú afturkallar samþykki þitt fyrir því að persónulegar upplýsingar séu sýndar öðrum Zinzino
Independent Partners (sjálfstæðum samstarfsaðilum) getur þú ekki lengur verið Zinzino
Independent Partner. Þegar samþykki þitt er afturkallað, verður því litið á það sem tilkynningu
um uppsögn á samstarfssamningi þínum.
7. Hvernig við vinnum úr upplýsingunum þínum og hverjum þær gætu verið fengnar í hendur
7.1. . Persónuleg gögn sem við vinnum um þig verða fyrst og fremst unnin hjá Zinzino og hjá fyrirtækjum í
samsteypu okkar, en viðeigandi hluta þeirra má þó afhenda þeim Zinzino Independent Partner (sjálfstæða
samstarfsaðila) sem á að fá þóknun eða punkta af sölu til þín eða í gegnum þig, svo og þeim fyrirtækjum
sem aðstoða okkur við framleiðslu og dreifingu á vörum og þjónustu, svo sem póstsendinga- og
flutningafyrirtækjum og öðrum söluaðilum/birgjum. Við nýtum einnig undirverktaka, til dæmis þá sem
bjóða upp á þjónustukerfi fyrir viðskiptavini, og fá þeir aðgang að persónubundnum gögnum sem
úrvinnsluaðili persónulegra gagna fyrir okkar hönd.
7.2. Zinzino veitir ekki öðrum fyrirtækjum ekki persónulegar upplýsingar í markaðslegum tilgangi.
8. Hvar er persónugögn þín geymd?
8.1. Persónuleg gögn þín eru einkum vistuð í grunnvirkjum upplýsingatækni sem eitt gagnavinnslufyrirtækja
okkar veitir. Persónuupplýsingarnar eru fyrst og fremst unnar og geymdar innan ESB/EES, með þeim
undantekningum sem fram koma hér að neðan.
9. Gögn unnin utan ESB/EES
9.1. Zinzino nýtir sér þjónustu gagnavinnsluaðila persónulegra gagna sem annast þjónustukerfi fyrir
viðskiptavini, sem og birgja og dreifingaraðila utan ESB/EES. Því verða persónugögn þín send til
Bandaríkjanna og Kanada í tengslum við þessa úrvinnslu.
9.2. Hvað Kanada varðar hefur Framkvæmdastjórn ESB skorið úr um að þannig sé á fullnægjandi hátt unnið
að vernd persónuupplýsinga og úrvinnslan því talin vera áreiðanleg. Hvað úrvinnslu í Bandaríkjunum
varðar hefur engin ákvörðun enn verið tekin um fullnægjandi stig persónuverndar. Þess í stað höfum við
undirritað samkomulag við fyrirtækin sem vinna úr persónugögnum þínum sem gagnavinnsluaðilar á
okkar vegum, eða sem sameiginlegur eftirlitsaðili með gögnum (hið síðarnefnda á við um
samstæðufyrirtæki Zinzino í Bandaríkjunum) í samræmi við stöðluð samkomulagsákvæði sem unnin voru
af Framkvæmdastjórn ESB og álitin eru tryggja persónuvernd á fullnægjandi hátt. Ef þú óskar eftir því getur þú fengið afrit af samkomulagi við þessi fyrirtæki með því að hafa samband við okkur. Nánari
upplýsingar um stöðluð samningsákvæði ESB er að finna á t.d. https://ec.europa.eu/info/Law/LawTopic/Data-Protection/Data-Transfers-Outside-eu/Model-contracts-Transfer-Personal-Data-Thirdcountries_sv
10. Réttindi þín varðandi aðgengi að upplýsingum sem við vinnum úr
10.1. Þú átt rétt á að fá tilkynningu um og upplýsingar um gögnin sem við vinnum um þig ásamt afriti af
gögnunum (án endurgjalds) með því að hafa samband við okkur. Hins vegar munum við rukka
umsýslugjald sem samsvarar þeim kostnaði sem verður til við að framleiða og útvega þér
viðbótareintökin fyrir öll eintök fram yfir það sem þú átt rétt á að fá án endurgjalds.
11. Réttur þinn til leiðréttingar á röngum gögnum og eyðingu gagna
11.1. Ef þú telur að einhver gögn um þig séu röng er þér heimilt að fara fram á að upplýsingarnar verði
leiðréttar eða þeim eytt. Ef slíkar aðstæður koma upp, hafðu þá vinsamlegast samband við okkur og láttu
vita hvaða upplýsingar þú telur vera rangar og hvers vegna það ætti að leiðrétta þær eða fjarlægja.
12. Réttur þinn til að mótmæla tiltekinni úrvinnslu
12.1. Þú átt rétt á mótmæla þeim hluta vinnslu okkar á persónubundnum gögnum sem byggist á því að
„vega og meta hagsmuni”. Nánari upplýsingar um þá vinnslu sem þetta á við um er að finna í
köflum 5.4 og 5.10 hér að ofan.
12.2. . Hvað er varðar vinnslu persónuupplýsinga í markaðslegum tilgangi er þér heimilt að andmæla
þeim á hverjum tíma. Sé það gert verða persónugögn þín ekki lengur unnin í markaðslegum
tilgangi. Ef þú andmælir annarri notkun munum við íhuga það gagnvart ástæðum þess að við
verðum að halda áfram með vinnslu persónuupplýsinga þinna.
12.3. Hafðu samband við okkur ef þú vilt leggja fram einhver andmæli gegn einhverjum hluta þeirrar
vinnslu sem á sér stað á grundvelli þess að vega og meta hagsmuni.
13. Réttur þinn til takmörkunar á aðgengi
13.1. Þú getur einnig farið þess á leit að vinnsla persónugagna þinna verði takmörkuð (fryst), metir þú það svo
að persónulegu gögnin sem unnin eru séu ekki rétt, ef úrvinnslan yrði ólögleg/ólögmæt eða ef við þurfum
ekki lengur að varðveita gögnin eða vinna úr þeim en ef þú þarfnast þeirra engu að síður til að geta lagt
fram lagalega kröfu eða hefur andmælt vinnslu, og þar til við höfum brugðist við andmælum þínum.
14. Réttur þinn á færanleika gagna
14.1. Þér er heimilt að afla þér þeirra persónulegu gagna um þig sem þú lést okkur í té á skipulegan hátt sem er
almennt nýttur og á tölvulesanlegu formi til þess að geta flutt upplýsingarnar til annarra
gagnavinnsluaðila. Þetta á aðeins við um þær upplýsingar sem þú hefur sjálf/ur veitt okkur og aðeins
þegar úrvinnsla byggist á samþykki þínu eða í þeim tilgangi að standa við samning við þig. Hafðu
vinsamlegast samband við okkur ef þú vilt fá persónugögn þín með þessum hætti.
15. Réttur þinn til að leggja fram kvörtun
15.1. Við hjá Zinzino tökum friðhelgi einkalífs þíns mjög alvarlega. Við erum því mjög ánægð að persónugögn
þín séu alltaf unnin á réttan og öruggan hátt. Ef þú hefur einhverjar athugasemdir um afgreiðslu okkar eða
úrvinnslu persónulegra gagna skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur.
15.2. Ef þú telur er að vinnsla okkar á persónuupplýsingum sé röng á einhvern hátt hefur þú rétt á að leggja
fram kvörtun hjá Integritetsskyddsmyndigheten/persónuvernd Svíþjóðar (áður Datainspektionen), sem er
eftirlitsstjórnvald fyrir mál af þessu tagi. Nánari upplýsingar er að finna á www.datainspektionen.se.
16. Ekki hika við að hafa samband við okkur
16.1. Samskiptaupplýsingar okkar eru: Zinzino EHF (5805110660), Hulda Lindgrens Gate 8, SE-421 31 Västra
Frölunda, Svíþjóð.
16.2. Hægt er að ná sambandi við stuðning okkar við samstarfsaðila í síma +354 546 96 10 eða með tölvupósti
á: support.is@Zinzino.com